JCI húsið, Hellusundi 3, Reykjavík
Opið 12:00 - 22:00
JCI býður upp á vöfflukaffi á sama stað kl. 14-16. Tilvalið að kíkja við, gæða sér á vöfflu og skemmtilegri list.
Sýningin er fyrst opin í Litla Gallerý í Hafnarfirði 15. - 18. ágúst. Hún flyst síðan í JCI húsið í Reykjavík á Menningarnótt þar sem henni lýkur kl. 22 um kvöldið.
Um sýninguna
Heilaþoku þekkja margir af eigin raun en orsök og upplifun getur verið ólík á milli fólks. Líkt og hefðbundin þoka getur heilaþokan verið létt og sæmilega auðvelt að komast í gegnum hana, eða hún getur verið þykk og mikil og virðist seint ætla að létta til. Hún er óþægileg, hægir á okkur eða birgir okkur jafnvel alveg sýn.
Móðir og bur, Lauga og Bjartur tileinka þessa sýningu heilaþoku og nálgast viðfangsefnið hvort eftir eigin reynslu.
Lauga tengir sína heilaþoku við mismunandi æviskeið og uppruna, m.a. barneignir og brjóstagjöf (brjóstaþoku), áföll, steitu, álag, kulnun og blessaða breytingaskeiðið.
Bjartur (15 ára) þekkir heilaþoku vel þrátt fyrir ungan aldur sem skynsegin og kynsegin einstaklingur, út frá einhverfu, skynáreiti, ADHD og aðrar lífsins áskoranir.
Myndir Laugu eru unnar á akrýl á striga og sýna myndir af konum umluknar bleikri heilaþoku. Bjartur vinnur sínar myndir í Procreate á iPad Pro og gefa þær innsýn í háns hugarheim.
Sýningin er fyrst sett upp í Litla Gallerý í Hafnarfirði 15. - 18. ágúst. Þetta eru fyrstu sýningar þeirra beggja og eru þau mjög spennt fyrir þessu samstarfi. Þau eru sjálflærð og hafa bæði haft sjónlist í hjartanu frá unga aldri og farið á ýmis styttri námskeið. Lauga hafði ekki sérstaklega mikla trú á eigin getu og fylgdi því ekki köllun listagyðjunnar þar til Bjartur með háns eljusemi og leik við listagyðjuna varð móðurinni innblástur. Hán er hennar fyrirmynd í listinni. Þau eru því nú að hefja sinn listaferil samtímis og blómstra hvort á sinn hátt. Bjartur stefnir að auki á leiklistarferil og er nú að hefja 3. ár við nám í Leiklistarskóla Borgarleikhússins.
Sem fyrrum JCI félagi og senator fannst Laugu ekki koma annað til greina en að vera í JCI húsinu á menningarnótt og býður öll velkomin!
JCI húsið - Hellusund 3

