Back to All Events

Hvar er hausinn?


  • JCI húsið 3 Hellusund Reykjavík, Reykjavíkurborg, 101 Iceland (map)

Hvar er hausinn?
Ör-myndlistasýning sem opnar á Menningarnótt

Hvernig er það að ná ekki sambandi við eigin hugsanir? Öll ljós kveikt en enginn heima?

Á sýningunni "Hvar er hausinn?" kannar Lauga þá upplifun að finna ekki hugsanir sínar. Birtingamyndin getur verið mismunandi. Stundum er eins og það þurfi að synda gegnum þykkt lag af þara, stundum spilast lag á fullu blasti, stundum svífur hugurinn eitthvert langt upp í fjarlægar skýjaborgir. Hvernig sem það er, getur reynst erfitt að "heyra" eigin hugsanir.

Sýningin miðlar reynslu miðaldra konu sem hefur tekist á við breytingaskeið, kulnun og örugglega eitthvað fleira (það þarf þó ekki að vera miðaldra kona á breytingaskeiði til að upplifa þessa tilfinningu...) en gerir engu að síður sitt besta til að skapa eitthvað fallegt og jákvætt, njóta lífsins og hafa gaman.

Hér eru til sýnis sjö glæný dúkaristuprentverk sem unnin voru í sumar.

Sýningin var fyrst uppsett í júlí á 71°N í Gamvik, Noregi undir heitinu "Where is my mind" og er hún beint framhald af sýningunni Heilaþoka frá árinu 2024.

Hægt verður að kaupa verk á staðnum.

OPNUNARTÍMAR

  • Menningarnótt, laugardagur 22. ágúst: 13-18

  • Sunnudagur 23. ágúst: 15-18

  • Mánudagur 24. ágúst: 15-18

STAÐSETNING:

Hið fallega og virðulega hús JCI
Hellusundi 3 - 101 RVK
(í Þingholtunum) - ATH. ekki hjólastólaaðgengi

JCI stendur fyrir dagskrá á sama stað kl. 14-16 á menningarnótt og verður vöfflukaffi í boði á þeim tíma (namm)

JCI húsið - Hellusundi 3

Previous
Previous
24 August

Heilaþoka á Menningarnótt 2024